EN

Dimmalimm og Svanavatnið

Litli tónsprotinn

Áskrift að tónleikaröð eða Regnbogakorti tryggir þér öruggt sæti á besta verðinu með 20% afslætti
Dagsetning Staðsetning Verð
17. feb. 2024 » 14:00 » Laugardagur Eldborg | Harpa 2.900 - 3.500 kr.
  • Efnisskrá

    Atli Heimir Sveinsson Dimmalimm
    Pjotr Tsjajkovskíj Úr Svanavatninu
    Atli Heimir Sveinsson Kvæðið um fuglana

  • Hljómsveitarstjóri

    Ross Jamie Collins

  • Kynnir og sögumaður

    Trúðurinn Barbara

  • Kór

    Gradualekór Langholtskirkju

  • Dansarar

    Úr Listdansskóla Íslands

Listmálarinn Muggur, Guðmundur Thorsteinsson, samdi ævintýrið um Dimmalimm handa lítilli frænku sinni þegar hann var á siglingu í Miðjarðarhafinu. Ævintýrið er meðal helstu gersema listmálarans sem málaði gullfallegar myndir með sögunni sem tónleikagestir njóta í tónleikasal. Tónlist Atla Heimis Sveinssonar við verkið skipaði sér strax í flokk helstu djásna íslenskra tónverka og verður flutt af Sinfóníuhljómsveit Íslands, kórstúlkum úr Graduale-kór Langholtskirkju og dönsurum úr Listdansskóla Íslands. 

Dimmalimm er fylgt úr hlaði með völdum þáttum úr Svanavatninu eftir Tsjajkovskíj. Þessum sannkölluðu ævintýratónleikum lýkur á fjöldasöng með Kvæðinu um fuglana. Kynnir og sögumaður er trúðurinn Barbara, leikinn af Halldóru Geirharðsdóttur. 

Sækja tónleikaskrá