EN

Hvar er húfan mín? – FRESTAÐ

Tónlist eftir Thorbjörn Egner úr Kardemommubænum og Dýrunum í Hálsaskógi

Áskrift að tónleikaröð eða Regnbogakorti tryggir þér öruggt sæti á besta verðinu með 20% afslætti
Dagsetning Staðsetning Verð
25. apr. 2020 » 12:00 - 13:00 » Laugardagur Eldborg | Harpa 2.600 - 3.000 kr. Frestað
25. apr. 2020 » 14:00 - 15:00 » Laugardagur Eldborg | Harpa 2.600 - 3.000 kr. Frestað
  • Efnisskrá

    Tónlist eftir Thorbjörn Egner úr Kardemommubænum og Dýrunum í Hálsaskógi

  • Hljómsveitarstjóri

    Marit Strindlund

  • Einsöngvarar

    Jóhanna Vigdís Arnardóttir, Pálmi Gestsson, Valur Freyr Einarsson og Örn Árnason

  • Kór

    Skólakór Kársness
    Álfheiður Björgvinsdóttir kórstjóri

  • Útsetningar

    Jóhann G. Jóhannsson

Vegna samkomubanns hefur tónleikunum verið frestað fram á næsta starfsár á laugardaginn 15. maí 2021. Tónleikagestir sem eiga miða á tónleikana verða færðir í sömu sæti á nýja dagsetningu. Ef nýr tónleikadagur hentar ekki er hægt að eiga upphæðina sem inneign upp í aðra tónleika að eigin vali eða fá miðann endurgreiddan í miðsölu Hörpu. Nánar

„Hvar er húfan mín?“, „Ja, fussum svei!“, „Dvel ég í draumahöll“, „Þegar piparkökur bakast“ og fjölmörg önnur kunnugleg lög úr heimahögum Kaspers og Jespers og Jónatans, Soffíu frænku, Lilla klifurmúsar og Mikka refs hljóma nú í fyrsta sinn í Eldborg í meðförum Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Sögurnar og söngvarnir hafa glatt unga jafnt sem aldna um langt árabil og eru söngvar og persónur Thorbjörns Egners meðal okkar skemmtilegustu og tryggustu heimilisvina.

Gestgjafar á þessum litríku fjölskyldutónleikum verða hinir landsþekktu leikarar og söngvarar Jóhanna Vigdís Arnardóttir, Pálmi Gestsson, Valur Freyr Einarsson og Örn Árnason ásamt Skólakór Kársness. 

Sinfóníuhljómsveitin okkar tekst nú á hendur stórkostlega skemmtilegt ferðalag til Kardemommubæjar og Hálsaskógar þar sem góð samskipti og fallegar lífsreglur eru lagðar í hvívetna.

Sænski hljómsveitarstjórinn Marit Strindlund sækir hljómsveitina heim í fyrsta sinn en hún hefur verið atkvæðamikill óperustjórnandi í Skandinavíu og víðar ásamt því að vinna við ballettuppfærslur um árabil í Covent Garden.