Vinafélagskynning 19. nóvember
Fimmtudagskvöldið 19. nóvember heldur Vinfélag SÍ kynningu.
Árni Heimir Ingólfsson tónlistarfræðingur og tónlistarstjóri SÍ kynnir verkin sem á leikin verða á tónleikum kvöldsins, píanókonsertinn eftir Schumann og Sinfóníu nr. 4 eftir Brahms. Hann rekur tilurð tónlistarinnar, segir frá örlagaríkri vináttur tónskáldanna og ást þeirra á Clöru Schuman.
Kynningin hefst kl. 18.00 á Kaffitorginu í Neskirkju.
Allir eru velkomnir í súpu og spjall í Neskirkju. Frítt er inn en greiða þarf 1500 kr. fyrir súpu og kaffi.
Næstu kynningar eru:
21. janúar Prokofiev, Ravel og Stravinskíj
25. febrúar Chopin og Bruckner
18. mars Sinfónía nr. 2 eftir Mahler. 60 ára afmælistónleikar SÍ.
25. mars Dafnis og Klói
6. maí Schumann og Brahms II
- Eldri frétt
- Næsta frétt