EN

22. september 2004

Heimildamynd um tónleikferð til Þýskalands á dagskrá Ríkissjónvarpsins 26. september

Í desember árið 2003 hélt Sinfóníuhljómsveit Íslands í tónleikaferð til Þýskalands og lék á alls 5 tónleikum í jafnmörgum borgum. Í heimildarmyndinni: Næsta stopp: "Dusseldorf" er fylgst með baksviðs hvernig slík ferð gengur fyrir sig og leitað svara við þeirri spurningu hversu mikilvægar slíkar ferðir séu fyrir hljómsveitina.Myndin er á dagskrá RÚV sunnudagskvöldið 26. september kl. 20.10. Framleiðandi er Sagafilm.