EN

20. september 2006

Björgvin og Sinfóníuhljómsveitin. Aukatónleikum á sunnudegi bætt við.

Ákveðið hefur verið að bæta við aukatónleikum með Björgvini Halldórssyni og Sinfóníuhljómsveitinni vegna mikillar eftirspurnar. Fyrri tónleikarnir, sem verða á laugardaginn 23. september, seldust upp á mettíma fyrir skemmstu. Seinni tónleikarnir verða daginn eftir, sunnudaginn 24. september og hefjast þeir klukkan 20.00. Á tónleikunum mun Björgvin syngja margar af sínum þekktustu dægurlagaperlum sem þjóðin hefur raulað með honum í áratugi. Tekið skal fram að miðsala er ekki á vegum Sinfóníuhljómsveitarinnar. Miða er hægt að kaupa á midi.is.