EN

27. desember 2006

Þóra Einarsdóttir syngur með hljómsveitinni á fernum vínartónleikum

Sinfóníuhljómsveit Íslands heldur sína árlegu Vínartónleika í Háskólabíói, 3. – 6. Janúar næstkomandi. Ekki duga færri en fernir tónleikar til að svala löngun Íslendinga í Vínartónlist í þetta sinn og ef litið er til reynslu fyrri ára má reikna með að uppselt verði á alla tónleikana. Efnisskráin er að mestu prýdd þokkafullum perlum Strauss-feðga enda er vandséð hvernig hinir fjörugu Vínartónleikar Sinfóníunnar væru jafn vinsælir ár eftir ár án þátttöku þeirra feðga. Hljómsveitin hélt sína fyrstu Vínartónleika 1972, en frá 1981 hafa þeir verið fastur og ómissandi liður á efnsskrá hljómsveitarinnar. Á þessum tíma hafa tugþúsundir Íslendinga flykkst á Vínartónleika og gert þá að vinsælustu tónleikum Íslandssögunnar! Góðir gestir Sinfóníunnar í ár eru sópransöngkonan, Þóra Einarsdóttir og hljómsveitarstjórinn Christopher Warren-Green. Þóru þarf vart að kynna hér, svo oft hefur hún heillað tónleikagesti jafnt á íslensku sem erlendu tónleikasviði með lýrískum flutningi sínum. Warren-Green hefur um langt skeið verið tónlistarstjóri Kammersveitar Lundúnaborgar. Hann hóf feril sinn sem fiðluleikari og ekki er ólíklegt að hann freistist til þess að handleika hljóðfærið við þetta tækifæri. Tónleikarnir 3., 4. og 5. janúar hefjast kl. 19:30 en tónleikarnir laugardaginn 6., kl. 17. Nokkur sæti eru laus á tónleikana 5. og 6. en eitthvað fleiri sæti eru enn á boðstólum 3. og 4.