EN

24. október 2008

Kristján Jóhannsson 1. nóvember

Þó svo að Japansferð Sinfóníuhljómsveit Íslands hafi verið aflýst eins og fram hefur komið er engan bilbug að finna á hljómsveitinni. Nú hefur verið sett saman metnaðarfull verkefnaskrá fyrir næstu vikur þar sem hljómsveitin verður á faraldsfæti um höfuðborgarsvæðið og víðar. Tveir af fremstu tónlistarmönnum þjóðarinnar syngja og leika með hljómsveitinni á þessum tónleikum og stjórnandi verður Petri Sakari. Heimsóknir í verslunarmiðstöðvar Veislan hefst þriðjudaginn 28. október. Þá mun hljómveitin heimsækja Kringluna og Smáralind og leika fyrir gesti og gangandi kl. 16.30. Einnig munu blásarar sveitarinnar leika í verslun IKEA í Garðabæ kl. 12. Efnisskráin á þessum viðburðum verður létt og skemmtileg og og veitir starfsfólki og viðskipavinum kjörið tilefni til að gleyma hversdagsamstrinu um stund. Kristján Jóhannsson í Háskólabíói Laugardaginn 1. nóvember kl. 17 er síðan komið að stórtónleikum í Háskólabíói. Þar leiða saman hesta sína hljómsveitin og stórtenórinn Kristján Jóhannsson. Það eru átta ár síðan Kristján söng síðast með hljómsveitinni og því kærkomið tækifæri til að njóta listar stórsöngvarans, sem vitaskuld er óþarfi að kynna frekar. Á efnisskránni eru íslenskar söngperlur og frægar aríur eftir Puccini og Leoncavallo. AUk þess verður leikin fimmta sinfónía Beethovens, karnivalforleikur Dvoráks og tveir kaflar úr hinni ástsælu tónlist Griegs við Pétur Gaut. Miðaverð á þessa tónleika verður aðeins 1.000 kr. Smelltu hér til að tryggja þér miða.