EN

  • Kaufmann_listi

3. desember 2010

Jonas Kaufmann á Listahátið í vor

Þýski tenórinn Jonas Kaufmann syngur með Sinfóníuhljómsveit Íslands á tónleikum á Listhátíð 21. maí 2011. Tónleikarnir eru samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík, Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Hörpu. Jonas Kaufmann er einn frægasti óperusöngvari samtímans og hefur hlotið einróma lof fyrir flutning sinn í öllum helstu óperuhúsum heims. Kaufmann er fæddur í München í Þýskalandi árið 1969 og hóf feril sinn hjá Staatstheater Saarbrucken árið 1994. Síðan hefur hann sungið m.a. við Metropolitan-óperuna, Parísaróperuna, og við tónlistarhátíðirnar í Bayreuth og Salzburg. Nýverið hlaut hann mikið lof gagnrýnenda fyrir túlkun sína á Don José í Carmen og Cavaradossi í Toscu Puccinis í Covent Garden. Kaufmann er nú á hátindi ferils síns og er uppselt á tónleika hans og óperuuppfærslur með löngum fyrirvara. Hann hefur auk þess sungið inn á fjölda hljómdiska með óperuaríum og ljóðasöng, sem hafa verið tilnefndir til Gramophone- og BBC-tónlistarverðlaunanna.  
 
Rétt fyrir komu Kaufmanns á Listahátíð í vor kemur hann fram ásamt stjörnuliði stórsöngvara í Metropolitan-óperunni, í uppfærslu Roberts Lepage á öðrum hluta Niflungahrings Wagners, Valkyrjunum. Þar syngur hann meðal annars með gestum sem Íslendingum eru að góðu kunnir frá fyrri Listahátíðum: Bryn Terfel og Deborah Voigt, undir stjórn James Levine. 
Miðasala á tónleikana hefst í febrúar.

www.jonas-kaufmann.com

www.jonaskaufmann.com