EN

31. ágúst 2017

Ungir einleikarar - opið fyrir umsóknir

Á hverju ári fer fram keppni ungra einleikara sem Sinfóníuhljómsveit Íslands stendur fyrir í samvinnu við Listaháskóla Íslands en Listaháskólinn er framkvæmdaraðili keppninnar. Keppnin er opin nemendum sem stunda nám í hljóðfæraleik eða söng á 1. háskólastigi (bakkalár), óháð því hvaða skóla þeir sækja, og fá þeir hlutskörpustu að leika einleik með Sinfóníuhljómsveit Íslands í Eldborgarsal Hörpu 11. janúar 2018.

Opnað verður fyrir umsóknir þann 31. ágúst og rennur umsóknarfresturinn út þann 6. október og keppnin fer fram laugardaginn 28. október.

Umsóknareyðublað má nálgast á heimasíðu Listaháskólans.