EN

Enigma-tilbrigðin

Áskrift að tónleikaröð eða Regnbogakorti tryggir þér öruggt sæti á besta verðinu með 20% afslætti
Dagsetning Staðsetning Verð
11. jan. 2024 » 19:30 » Fimmtudagur Eldborg | Harpa 3.000 - 9.200 kr.
  • Efnisskrá

    Samuel Coleridge-Taylor Ballaða í a­-moll
    Helen Grime Fiðlukonsert
    Edward Elgar Enigma­-tilbrigðin

  • Hljómsveitarstjóri

    Daníel Bjarnason

  • Einleikari

    Leila Josefowicz

Tónleikakynning » 11. jan. kl. 18:00

Enigma-tilbrigði Edwards Elgars eru eitt ástsælasta sinfóníska stórvirki Breta fyrr og síðar og færðu þau tónskáldinu heimsfrægð þegar þau voru frumflutt árið 1900. Verkið samanstendur af 14 tilbrigðum sem bregða hvert um sig upp lifandi svipmyndum af vinum tónskáldsins og kunningjum, konu hans og loks honum sjálfum. Tónlistin spannar allt frá góðlátlegri glettni til djúpra ástríðna en stefið sem öll tilbrigðin kallast á við heyrist hins vegar aldrei í verkinu sjálfu og er það hin eiginlega ráðgáta sem titillinn vísar til.

Á þessum tónleikum kemur fram fiðluvirtúósinn og staðarlistamaðurinn Leila Josefowicz í annað sinn á starfsárinu. Í þetta sinn er hún með brakandi ferskan fiðlukonsert skoska tónskáldsins Helen Grime frá 2016 í farteskinu. Grime er meðal fremstu tónskálda Breta af ungu kynslóðinni og hafa verk hennar verið lofuð fyrir leiftrandi andagift og einstaka hugkvæmni. „Ég er sérstaklega spennt að geta frumflutt fiðlukonsert Helen Grime á Íslandi,“ segir Leila Josefowicz um verkið. „Hann kraumar af líkamlegri orku til jafns við eitthvað dulrænt og himneskt. Fá ný verk eru skemmtilegri að flytja fyrir fólk.“ Upphafsverk tónleikanna er Ballaða í a-moll eftir Samuel Coleridge Taylor, samtímann Elgars, kraftmikið og líflegt verk þar sem dregnar eru fram skýrar tilfinningar þótt formið sé knappt. 

Tónleikakynning Vinafélagsins er á sínum stað fyrir tónleikana. Umsjón með kynningunni hefur Þorbjörg Daphne Hall en sérstakur gestur hennar er Helen Grime tónskáld sem verður einnig viðstödd tónleikana. 

Sækja tónleikaskrá