EN

Gerstein leikur Rakhmanínov

Áskrift að tónleikaröð eða Regnbogakorti tryggir þér öruggt sæti á besta verðinu með 20% afslætti
Dagsetning Staðsetning Verð
26. okt. 2023 » 19:30 » Fimmtudagur Eldborg | Harpa 3.000 - 9.200 kr.
  • Efnisskrá

    Jennifer Higdon blue cathedral
    Sergej Rakhmanínov Píanókonsert nr. 3
    Sergej Prokofíev Rómeó og Júlía, svíta

  • Hljómsveitarstjóri

    Stéphane Denève

  • Einleikari

    Kirill Gerstein

Tónleikakynning » 26. okt. kl. 18:00

Þriðji píanókonsert Rakhmanínovs er einn af hátindum píanóbókmenntanna, skrifaður af mikilli andagift og þekkingu á möguleikum hljóðfærisins. Verkið er jafnframt einhver kröfuharðasti píanókonsert sem saminn hefur verið en eins og frægt er orðið hafði Rakhmanínov gríðarstórar hendur og bjó yfir feikilega góðri píanótækni. Það er því heppilegt að einleikarinn á þessum tónleikum, Kirill Gerstein, „hristir erfiðustu tónahlaup fram úr erminni eins og ekkert sé“, eins og gagnrýnandi Fréttablaðsins komst að orði um Gerstein þegar hann kom fram með Sinfóníuhljómsveit Íslands árið 2016. Við sama tækifæri var leikur hans sagður „rafmagnaður og fullur af dirfsku“.

Það finnast ekki síður óheflaðar ástríður í balletttónlist Sergejs Prokofíev um elskendurna sem Shakespeare gerði ódauðlega, Rómeó og Júlíu. Á þessum tónleikum hljómar svíta sem hljómsveitarstjóri kvöldsins, Stéphane Denève, hefur unnið upp úr stórvirki Prokofíevs. Tónleikarnir hefjast á stuttu hljómsveitarverki Jennifer Higdon, blue cathedral, þar sem sárar tilfinningar tengdar bróðurmissi fá farveg í fáguðum hljómsveitarvefnaði. 

Sækja tónleikaskrá