EN

Mendelssohn og Beethoven

Áskrift að tónleikaröð eða Regnbogakorti tryggir þér öruggt sæti á besta verðinu með 20% afslætti
Dagsetning Staðsetning Verð
8. feb. 2024 » 19:30 » Fimmtudagur Eldborg | Harpa 3.000 - 9.200 kr.
Hlusta
  • Efnisskrá

    Charles Ives Sinfónía nr. 3
    Felix Mendelssohn Fiðlukonsert í e-­moll
    Caroline Shaw Entr'acte
    Ludwig van Beethoven Sinfónía nr. 8

  • Hljómsveitarstjóri

    Ludovic Morlot

  • Einleikari

    Vadim Gluzman

Tónleikakynning » 8. feb. kl. 18:00

Hinn sívinsæli fiðlukonsert Mendelssohns í e-moll er sá síðasti sem Mendelssohn lauk við á sinni skömmu ævi. Einleikari er Vadim Gluzman sem er meðal fremstu fiðluleikara samtímans og þekktur fyrir túlkun sína á verkum frá gullöld fiðlubókmenntanna. Sinfónía Beethovens nr. 8 er ein af hans fjörmestu tónsmíðum, full af gleði og gáska, og taldi Beethoven sjálfur hana meðal sinna bestu verka. 

Til viðbótar við þessi þýsku öndvegisverk frá 19. öld hljóma á tónleikunum tvö bandarísk verk af nýstárlegri toga. Sinfónía nr. 3 eftir Charles Ives var samin 1904 en lá í skúffu tónskáldsins, sem starfaði sem virðulegur tryggingasölumaður í dagvinnu, í ríflega 40 ár áður en hún var frumflutt. 

Þannig var það reyndar með mörg af framsæknustu verkum hans, enda voru þau á margan hátt á undan sinni samtíð. Í Sinfóníu nr. 3 enduróma minningar Ives um guðsþjónustur sem hann sótti í æsku og fléttast þar saman gömul sálmalög svo úr verður heillandi óreiða. Caroline Shaw hlaut Pulitzer-verðlaunin í tónlist 2013, aðeins þrítug að aldri, yngst í 70 ára sögu verðlaunanna. Verkið sem hér hljómar er millispil fyrir strengjasveit, innblásið af menúetti eftir Haydn og kallast skemmtilega á við hefð Vínarklassíkurinnar. 

Sækja tónleikaskrá