Ungsveit Sinfónínunnar
Hljómsveitarnámskeið Ungsveitar Sinfóníuhljómsveitar Íslands 2011 mun standa frá laugardeginum 15. október til sunnudagsins 6. nóvember 2011.
Að þessu sinni mun verkefni hljómsveitarinnar vera hin stórbrotna sinfónía nr. 5 eftir Mahler. Svissneski hljómsveitarstjórinn Baldur Brönnimann mun stjórna námskeiðinu sem endar með tónleikum í Eldborg í Hörpu, 6. nóvember kl. 14:00.
Baldur Brönnimann er tónleikagestum Sinfóníuhljómsveitar Íslands að góðu kunnur.
Hann hefur stjórnað hljómsveitinni í þrígang við góðan orðstýr og lof gagnrýnenda.
Brönnimann er aðalstjórnandi Þjóðarhljómsveitarinnar í Kólumbíu en auk þess er hann listrænn stjórnandi norska kammerhópsins BIT20 og starfar reglulega með hljómsveitum á borð við London Sinfonietta, Skosku kammerhljómsveitinni og Sinfóníuhljómsveit Lundúna. Brönnimann hefur unnið mikið með æskulýðshljómsveitum, m.a. í Skotlandi og Ástralíu og heldur meistaranámskeið víða um heim. Hann nam sjálfur við Tónlistarakademíuna í Basel og Royal Northern College of Music í Manchester þar sem hann lærði hjá Kent Nagano og Sir Edward Downes.
Ungsveit SÍ 2011
Æfingaplan, 1. útgáfa (birt með fyrirvara um breytingar
Laugardagur 15. október Raddæfingaherberg
10:00 - 13:00 Raddæfingar, sjá plan.
Mánudagur 17. október Norðurljós, Hörpu
18:00 - 22:00 Tutti æfing með Guðmundi Óla Gunnarssyni
Þriðjudagur 18. október Norðurljós, Hörpu
14:30 - 17:00 Strengjaæfing með Sigrúnu Eðvaldsdóttur
18:00 - 21:00 Tutti æfing með Guðmundi Óla Gunnarssyni
Laugardagur 22. október Raddæfingaherbergi
10:00 - 16:00 Raddæfingar, sjá plan
Föstudagur 28. október Eldborg, Hörpu
18:00 - 22:00 Tutti hljómsveit. Baldur Brönnimann
Laugardagur 29. október Tilkynnt síðar
13:00 - 16:00 Tutti hljómsveit. Baldur Brönnimann
Sunnudagur 30. október Eldborg, Hörpu
10:00 - 16:00 Tutti hljómsveit. Baldur Brönnimann
Mánudagur 31. október Eldborg, Hörpu
18:00 - 21:00 Tutti hljómsveit. Baldur Brönnimann
Þriðjudagur 1. nóvember Eldborg, Hörpu
18:00 - 21:00 Tutti hljómsveit. Baldur Brönnimann
Miðvikudagur 2. nóvember Eldborg, Hörpu
18:00 - 21:00 Tutti hljómsveit. Baldur Brönnimann
Fimmtudagur 3. nóvember Norðurljós, Hörpu
16:30 - 19:30 Tutti hljómsveit. Baldur Brönnimann
Föstudagur 4. nóvember Norðurljós, Hörpu
18:00 - 22:00 Tutti hljómsveit. Baldur Brönnimann
Laugardagur 5. nóvember Norðurljós
10:00 - 16:00 Tutti hljómsveit. Baldur Brönnimann
Sunnudagur 6. nóvember Eldborg
10:00 - 12:00 Aðalæfing.
14:00 Tónleikar Eldborg
Upplýsingar um Ungsveit SÍ 2011 veitir:
Greipur Gíslason verkefnastjóri, greipur@sinfonia.is / s. 8983263 og Arna Krístín Einarsdóttir tónleikastjóri
* Athugið æfingaplanið er birt með fyrirvara um breytingar



