EN

Ævintýrið um töfraflautuna – aflýst

Fjölskyldutónleikar Litla tónsprotans

Áskrift að tónleikaröð eða Regnbogakorti tryggir þér öruggt sæti á besta verðinu með 20% afslætti
Dagsetning Staðsetning Verð
12. feb. 2022 » 14:00 » Laugardagur Eldborg | Harpa 2.700 – 3.200 kr.
  • Efnisskrá

    Wolfgang Amadeus Mozart Töfraflautan (í styttri gerð)

  • Hljómsveitarstjóri

    Kornilios Michailidis

  • Einsöngvarar

    Eyrún Unnarsdóttir, Sveinn Dúa Hjörleifsson, Oddur Arnþór Jónsson, Harpa Ósk Björnsdóttir og Bryndís Guðjónsdóttir

  • Sögumaður

    Þórunn Arna Kristjánsdóttir

Í ljósi mikillar útbreiðslu kórónuveirunnar og hertra samkomutakmarkanna hefur Sinfóníuhljómsveitar Íslands ákveðið að aflýsa tónleikunum. Einnig er skólatónleikunum Ævintýrið um Töfraflautuna aflýst. Tónleikarnir verða á dagskrá næsta starfsárs og verður dagsetning þeirra tilkynnt síðar. Miðar verða endurgreiddir að fullu.

Töfraflautan eftir Mozart er ein dáðasta ópera sögunnar og sannkallaður ævintýraheimur fyrir unga sem aldna. Prinsinn Tamínó leggur af stað í leiðangur til að bjarga hinni fögru Pamínu, en smám saman kemur í ljós að móðir hennar, Næturdrottningin, sem sendi hann af stað, er ekki öll þar sem hún er séð. Til aðstoðar hefur prinsinn fuglaveiðara að nafni Papagenó. Sá er lítið fyrir háfleygar hugsanir en kann vel að meta góðan mat og drykk og vill helst af öllu finna sér sálufélaga. Að lokum fella Tamínó og Pamína hugi saman, en þurfa að leysa erfiðar þrautir áður en þau fá að eigast.

Hér er meistaraverk Mozarts flutt í klukkustundarlangri útfærslu fyrir sögumann og fimm einsöngvara, en með hlutverkin fara íslenskir söngvarar af yngri kynslóðinni. Öll hafa þau stundað framhaldsnám erlendis og hlotið frábæra dóma fyrir söng sinn og leik. Sögumaður er Þórunn Arna Kristjánsdóttir sem lýsir framvindunni með kímnigáfu að leiðarljósi. Þetta er hugljúf og eftirminnileg ævintýrastund fyrir alla fjölskylduna.