EN

Barnastund Sinfóníunnar

Ókeypis tónleikar fyrir yngstu hlustendurna

Dagsetning Staðsetning Verð
11. mar. 2023 » 11:30 » Laugardagur Flói | Harpa
  • Barnastund:

    Létt og leikandi tónlist fyrir allra yngstu hlustendurna

  • Hljómsveitarstjóri

    Nathanaël Iselin

  • Einsöngvari

    Hrafnhildur Árnadóttir Hafstað

  • Kynnir

    Níels Thibaud Girerd / Trúðurinn Páka

Á Barnastundum Sinfóníuhljómsveitarinnar er áhersla lögð á notalegheit og nánd við hljómsveitina þar sem létt og leikandi tónlist er flutt fyrir allra yngstu hlustendurna. Barnastundirnar hafa notið mikilla vinsælda og eru sannkallaðar gæðastundir og góður upptaktur að ljúfum degi.

Á þessari Barnastund kynnir trúðurinn Páka, leikinn af Níels Thibaud Girerd, fallegar vorperlur og klassíska gimsteina þar sem fuglar og ævintýri eru í forgrunni. Dagskráin er um það bil hálftímalöng og er skemmtileg samverustund fyrir yngstu börnin. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir á meðan húrsúm leyfir. Gott er að koma með púða til að sitja á.