EN

Bertrand Chamayou

Einleikstónleikar

Áskrift að tónleikaröð eða Regnbogakorti tryggir þér öruggt sæti á besta verðinu með 20% afslætti
Dagsetning Staðsetning Verð
11. sep. 2026 » 18:00 » Föstudagur Norðurljós | Harpa 4.900 kr.
Miðasala hefst 8. júní
  • Efnisskrá

    Felix Mendelssohn Úr Lieder ohne Worte
    Charles Ives Song without (good) Words
    John Lennon & Paul McCartney / Toru Takemitsu Golden Slumbers
    Robert Schumann / Franz Liszt Widmung
    George Crumb Eine Kleine Mitternachtmusik
    György Kurtág Scraps of a Colinda Melody – Faintly Recollected
    Franz Schubert Wandererfantasie

  • Einleikari

    Bertrand Chamayou píanó

Gagnrýnendur hafa vart undan því að lofa píanóleik Bertrands Chamayou. Efnisval hans hefur verið kallað frumlegt og leitandi, leikurinn kraftmikill, tæknilega fullkominn og hrífandi fagur.

Ljóð án orða er leiðarstef þessara tónleika, þar sem öll efnisskráin tengist sönglögum sem orðið hafa tónskáldum innblástur. Smálög Mendelssohns, Ljóð án orða, eru viðeigandi upphaf þessa ferðalags. Þeim fylgir tónlist sem rímar vel við hógvær og innileg lög Mendelssohns, þar á meðal Söngur án (góðra) orða eftir Charles Ives, „Tileinkun“ Schumanns og dreymandi upprifjun Kurtágs á gleymdum rúmenskum jólasálmi. Vangaveltur George Crumbs um sígildan ópus Thelonious Monks 'Round Midnight, í Eine kleine Mitternachtmusik og frjálsleg útsetning Takemitsus á Bítlalaginu Golden Slumbers færa okkur á framandi slóðir. Tónleikunum lýkur svo á hinni glæsilegu Wanderer-fantasíu eftir Franz Schubert þar sem hver hinna fjögurra þátta hefst á tilbrigði við samnefnt sönglag tónskáldsins.