| Dagsetning | Staðsetning | Verð | 
|---|---|---|
| 6. sep. 2019 » 10:00 » Föstudagur | Íþróttahúsið Torfnesi | Aðgangur ókeypis | 
- 
	EfnisskráTónlist úr Línu langsokk, Emil í Kattholti og fleiri ævintýrum eftir Astrid Lindgren í nýjum útsetningum eftir Jóhann G. Jóhannsson. 
 
- 
	Hljómsveitarstjóri
- 
	SögumennÞórunn Arna Kristjánsdóttir 
 Pétur Ernir Svavarsson
 
- 
	KórarBarnakór og Kórskóli Tónlistarskóla Ísafjarðar ásamt Skólakór Grunnskóla Bolungarvíkur, Önundarfjarðar, Suðureyrar og Þingeyrar 
 
- 
	KórstjórarBjarney Ingibjörg Gunnlaugsdóttir 
 Sigrún Pálmadóttir
 Dagný Arnalds
 Sara Hrund Signýjardóttir
 Jón Gunnar Biering Margeirsson
 
Á fjölskyldu- og skólatónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands á Ísafirði verður flutt úrval tónlistar úr leikritum, leikgerðum og kvikmyndum sem byggjast á ævintýrum Astridar Lindgren. Tónlist úr Línu langsokk, Emil í Kattholti, Bróður mínum Ljónshjarta og Á Saltkráku hljómar á tónleikum Sinfóníuhljómsveitarinnar í einstökum útsetningum Jóhanns G. Jóhannssonar. Gáskafull tónlistin með grípandi laglínum undirstrikar vel kenjar og óknytti sögupersónanna en einnig er að finna hrífandi og hugljúfa tónlist sem fangar vináttu og væntumþykju betur en nokkur orð.
Söngvararnir og sögumennirnir Pétur Ernir og Þórunn Arna bregða sér í hlutverk ýmissa sögupersóna ásamt Sinfóníuhljómsveitinni og barnakórum úr heimabyggð. Líf og fjör mun einkenna þessa tónleika þar sem uppeldissjónarmið fullorðinna eru teygð og toguð og hugmyndir æskunnar um lífið og tilveruna fá að njóta sín til fulls.
Hljómsveitin býður einnig upp á kvöldtónleika á Ísafirði fimmtudaginn 5. september kl. 19:30. Nánar um tónleikana hér.
Aðgangur er ókeypis á tónleikana og allir velkomnir.


