| Dagsetning | Staðsetning | Verð |
|---|---|---|
| 19. ágú. 2026 » 12:00 » Miðvikudagur | Eldborg | Harpa | 0 kr. |
-
Efnisskrá
Felix Mendelsohn Sinfónía nr. 4, ítalska sinfónían
Daníel Bjarnason Air to Breath
-
Leiðbeinandi
Daníel Bjarnason
Sinfóníuhljómsveit Íslands heldur nú í áttunda sinn námskeið í hljómsveitarstjórn en í ár er það Daníel Bjarnason sem leiðbeinir námskeiðinu. Í akademíunni fær ungt og efnilegt tónlistarfólk tækifæri til þess að spreyta sig á stjórnandapallinum og stjórna hljómsveitinni, undir styrkri handleiðslu Daníels. Akademían er fyrst og fremst vettvangur nemenda sem lokið hafa miðprófi hið minnsta í hljóðfæraleik eða söng. Völdum nemendum gefst svo tækifæri til að stjórna Sinfóníuhljómsveit Íslands á opnum hádegistónleikum í lok námskeiðsins.
Þetta starf er farið að bera ríkulegan ávöxt og hafa nemendur akademíunnar þegar látið til sín taka á pallinum, bæði hér heima og erlendis.
Viðburðurinn er öllum opinn og geta gestir fylgst með þessum hæfileikaríku stjórnendum stíga sín fyrstu skref á pallinum.
Aðgangur er ókeypis. Gengið er inn í Eldborg um inngang 2A.
