EN

Jólatónleikar Sinfóníunnar

Litli tónsprotinn

Áskrift að tónleikaröð eða Regnbogakorti tryggir þér öruggt sæti á besta verðinu með 20% afslætti
Dagsetning Staðsetning Verð
15. des. 2018 » 14:00 » Laugardagur Eldborg | Harpa 2.700 - 3.200 kr.
15. des. 2018 » 16:00 » Laugardagur Eldborg | Harpa 2.700 - 3.200 kr.
16. des. 2018 » 14:00 » Sunnudagur Eldborg | Harpa 2.700 - 3.200 kr.
16. des. 2018 » 16:00 » Sunnudagur Eldborg | Harpa 2.700 - 3.200 kr.
  • Efnisskrá

    Ingibjörg Þorbergs Jólakötturinn
    Jórunn Viðar Það á að gefa börnum brauð og Jól
    Guðni Franzson Jólin koma
    Gunnar Þórðarson Óður til jólanna
    Fleiri sígildir jólasöngvar

  • Hljómsveitarstjóri

    Bernharður Wilkinson

  • Flytjendur

    Valgerður Guðnadóttir
    Kolbrún Völkudóttir

  • Gestir

    Stúlknakór Reykjavíkur
    Litlu sprotarnir
    Dansarar úr Listdansskóla Íslands
    Bjöllukór Tónlistarskóla Reykjanesbæjar
    Lilja Hákonardóttir, flautuleikari
    Nanna Guðmundsdóttir, hörpuleikari

Jólatónleikar Sinfóníuhljómsveitar Íslands hafa um árabil verið hluti af hinum hefðbundna jólaundirbúningi hjá mörgum tónleikagestum. Á þessum hátíðlegu fjölskyldutónleikum verður skyggnst inn í íslensku baðstofuna þar sem gömlu jólasveinarnir og jólakötturinn hafa hreiðrað um sig. Einnig verður gullfalleg jólatónlist Jórunnar Viðar í forgrunni en tónskáldið hefði fagnað 100 ára afmæli á þessu ári.

Nemendur úr Listdansskóla Íslands túlka Jólakött Ingibjargar Þorbergs og Jólaóð Gunnars Þórðarsonar og Stúlknakór Reykjavíkur og Litlu sprotarnir flytja sígilda jólasöngva ásamt Valgerði Guðnadóttur og Kolbrúnu Völkudóttur. 

Ungir lúðraþeytarar koma fram með hljómsveitinni og Bjöllukór Tónlistarskóla Reykjanesbæjar hringir inn jólin og flytur jólalög fyrir og eftir tónleikana.

Kynnir er trúðurinn Hildur, leikinn af Katrínu Halldóru Sigurðardóttur, einni ástsælustu leikkonu landsins. Hljómsveitarstjóri er Bernharður Wilkinson. Tónleikarnir eru túlkaðir á táknmáli. 

*Athugið að upphaflega var auglýst að Barbara trúður eða Halldóra Geirharðsdóttir kynnti tónleikana.