EN

Caroline Shaw

Tónskáld og einleikari

Caroline Adelaide Shaw (f. 1982) er bandarískt tónskáld, fiðluleikari og söngkona fædd árið 1982 í Greenville, Norður-Karólínu. Tónlistarhæfileikar hennar komu snemma í ljós og tveggja ára gömul byrjaði hún að læra á fiðlu eftir Suzuki aðferðinni hjá móður sinni. Hún hneigðist að sígildri tónlist og samdi á ellefta ári sín fyrstu verk í anda Mozarts og Brahms. Hún lauk meistaraprófi í fiðluleik frá Yale-háskólanum árið 2007 og hóf tónsmíðanám í Princeton-háskólanum þremur árum síðar. Caroline Shaw flakkar á milli hlutverka, tegunda og miðla og reynir að ímynda sér hljóðheim sem aldrei hefur heyrst áður en hefur alltaf verið til. Hún vinnur gjarnan í samstarfi við aðra sem framleiðandi, tónskáld, fiðluleikari og söngkona. Shaw hefur hlotið Pulitzer-verðlaunin í tónlist, heiðursdoktorsgráðu frá Yale, fjögur Grammy-verðlaun og Thomas J. Watson-styrk. Hún hefur samið og framleitt fyrir þekkta listamenn og hljómsveitir á öllum sviðum tónlistar, þar á meðal Rosalíu, Renée Fleming, Yo-Yo Ma, Tiler Peck, Nas, Kanye West og fílharmóníuhljómsveitirnar í New York og Los Angeles svo dæmi séu tekin. Á yfirstandandi tónleikaferðalögum kemur hún fram með Sō Percussion, Ringdown, Attacca Quartet, Roomful of Teeth, Graveyards & Gardens, Gabriel Kahane og Kamus Quartet. Uppáhaldslitur hennar er gulur og uppáhaldsilmurinn rósmarín.