Clara-Jumi Kang
Einleikari
Fiðluleikarinn Clara-Jumi Kang er af suður-kóresku bergi brotin, en er fædd og uppalin í Þýskalandi. Hún hóf fiðlunám sitt aðeins þriggja ára gömul og aðeins ári síðar varð hún yngsti nemandinn í sögu tónlistaháskólans í Mannheim. Sjö ára var henni boðin innganga í Julliard skólann í New York þar sem hún lærði hjá Dorothy Delay. Hún lauk háskólanámi sínu í fiðluleik við Listaháskóla Kóreu undir leiðsögn Nam-Yun Kim og bætti að lokum við nokkrum árum með Christoph Poppen við tónlistarháskólann í München.
Á þessu starfsári er Kang staðarlistamaður Konunglegu fílharmóníusveitarinnar í Stokkhólmi og kemur reglulega fram með henni. Hún mun einnig koma fram með Sinfóníuhljómsveit Lundúna, Konunglegu fílharmóníuhljómsveitinni, vera einleikari á tónleikaferð evrópsku kammersveitarinnar og hljómsveitinni Fílharmóníu á tónleikaferð þeirra um Kóreu. Af öðrum hápunktum starfsársins má einnig nefna tónleika með Fílharmóníusveit BBC, Sinfóníuhljómsveitinni í Houston, Fílharmóníuhljómsveitinni í Monte Carlo og Sinfóníuhljómsveit Hamborgar í Elbfílharmóníunni að ógleymdum tónleikum með Sinfóníuhljómsveit Íslands í kvöld.
Kang er fastagestur á þekktum tónlistarhátíðum jafnt sem einleikari eða þátttakandi í kammertónlistarflutningi. Þar á meðal BBC Proms, Hollywood Bowl, Salzburg hátíðinni, Verbier hátíðinni og víðar. Sem flytjandi kammertónlistar hefur hún starfað með flytjendum á við Mörthu Argerich, Gidon Kremer, Mischa Maisky og Janine Jansen.
Kang hefur gefið út tvö hljóðrit á vegum Decca útgáfunnar. Modern Solo með einleiksverkum eftir ýmsa höfunda og Schumann & Brahms ásamt píanóleikaranum Yeol Eum Son. Árið 2021kom út athyglisverð heildarútgáfa á öllum fiðlusónötum Ludwig van Beethovens í meðförum Kang og píanóleikarans Sunwook Kim, en hann hefur komið fram með Sinfóníuhljómsveit Íslands í tvígang bæði sem stjórnandi og einleikari.
Clara-Jumi Kang leikur á Stradivariusfiðlu kennda við "Thunis" frá árinu 1702 en fiðlan sú var eitt sinn í eigu Jeanette Ysaÿe, ekkju tónskáldsins og fiðluleikarans Eugène Ysaÿe. Það eru KIA Motors sem lána Kang fiðluna.
Þetta er í fyrsta sinn sem Clara-Jumi Kang kemur fram með Sinfóníuhljómsveit Íslands.
