Evróputúr 2026
tónleikaferð Sinfóníuhljómsveitar Íslands
Sinfóníuhljómsveit Íslands heldur í tónleikaferð um Evrópu í mars og leikur þar á fimm tónleikum undir stjórn Evu Ollikainen, aðalhljómsveitarstjóra sveitarinnar. Einleikari í ferðinni er Kian Soltani, einn virtasti sellóleikari samtímans, en hann er jafnframt staðarlistamaður hljómsveitarinnar. Verkið ARCHORA eftir Önnu Þorvaldsdóttur verður flutt á öllum tónleikum ferðarinnar og önnur verk á efnisskrá eru sellókonsertar eftir Edward Elgar og Witold Lutosławski. Auk þess hljóma í ferðinni sinfónía nr. 2 og Dóttir norðursins eftir Jean Sibelius ásamt Eldfuglinum eftir Ígor Stravinskíj.
Tónleikasalirnir sem hljómsveitin leikur í eru með þeim glæsilegustu í Evrópu; M.a. Tonhalle í Zürich, Victora Hall í Genf og Elbphilharmonie í Hamborg.
Hér má nálgast fréttatilkynningu.
