EN

Francesco Piemontesi

Einleikari

Francesco Piemontesi er fæddur árið 1983 í Sviss. Hann er vel þekktur í tónleikahöllum víða um heim og hefur unnið með mörgum helstu hljómsveitum og stjórnendum samtímans – þar á meðal Jukka-Pekka Saraste sem stendur á stjórnendapallinum hér í kvöld.

Piemontesi vann til hinna þekktu verðlauna Elísabetar drottningar í Belgíu árið 2007 og eftir það hefur ýmis heiður fallið honum í skaut. Hann var valinn Listamaður nýrrar kynslóðar á árunum 2009–2011 hjá Breska ríkisútvarpinu, árið 2012 varð hann listrænn stjórnandi Settimane Musicale-tónlistarhátíðarinnar í Ascona og sama ár fékk hann Nýliðaverðlaun Tónlistartímarits breska ríkisútvarpsins fyrir upptökur sínar á verkum Händels, Brahms, Bach og Liszt. Hann flytur jafnan verk frá breiðu tímabili og eftir tónskáld allt frá Händel og Bach til Rakhmanínov, Bartók og Messiaen. Piemontesi hefur komið fram með mörgum þekktum hljómsveitum, þar má nefna Clevelandhljómsveitina, Fílharmóníuhljómsveit Lundúnaborgar, Útvarpshljómsveitina í Bæheimi, Sinfóníuhljómsveit Birmingham og Þýsku sinfóníuhljómsveitina í Berlín og útvarpshljómsveitirnar í Berlín Radio France og NHK í Japan. Hann hefur unnið með mörgum þekktum hljómsveitarstjórum, meðal annarra Zubin Mehta, Roger Norrington, Charles Dutoit, Jiři Bělohlávek, Stanisław Skrowaczewski, Vladimir Ashkenazy, Marek Janowski og Ton Koopman. Piemontesi hefur einnig komið fram á tónlistarhátíðum víða, þar sem nefna má Edinborgarhátíðina, Tónlistarhátíðina í Aix-en Provence í Frakklandi og Mostly Mozart-hátíðina sem haldin var í New York um árabil. Francesco Piemontesi gaf áður út undir merkjum Naïve Classique en frá árinu 2019 hefur hann eingöngu gefið út undir merkjum Pentatone.