Halldóra Ósk Helgadóttir
Söngkona
Halldóra Ósk Helgadóttir hóf söngnám 17 ára gömul við Söngskólann í Reykjavík hjá Hörpu Harðardóttur, þaðan sem hún útskrifaðist árið 2019. Hún lauk bakkalárgráðu frá Tónlistarháskólanum í Leipzig undir handleiðslu Rolands Schuberts, þar sem hún stundar nú meistaranám.
Halldóra hefur komið víða fram, meðal annars hefur hún sungið við Óperuna í Leipzig, Musikalische Komödie og Isar Philharmonie í München. Einnig hefur hún verið virk sem konsert- og ljóðaflytjandi víða um Þýskaland. Nýverið tók Halldóra þátt í söngkeppninni Vox Domini þar sem hún hreppti áhorfendaverðlaun, fyrsta sæti í Opnum Flokki, sem og titilinn “Rödd Ársins”.
