EN

Hildigunnur Einarsdóttir

Einsöngvari

Hildigunnur Einarsdóttir lauk burtfararprófi frá Söngskólanum í Reykjavík undir handleiðslu Ólafar Kolbrúnar Harðardóttur og Signýjar Sæmundsdóttur og stundaði framhaldsnám í Þýskalandi og Hollandi hjá Janet Williams og Jóni Þorsteinssyni. Hildigunnur hefur einnig lokið B.A. prófi í skapandi tónlistarmiðlun frá Listaháskóla Íslands. Þar nam hún söng hjá Hlín Pétursdóttur Behrens. Hildigunnur stjórnar ÁR kórnum í Reykjavík og Kvennakórnum Kötlu ásamt Lilju Dögg Gunnarsdóttur. Hildigunnur kennir einnig söng við Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar og Söngskólann Domus Vox og syngur m.a. með Schola cantorum, Cantoque Ensemble og Kór Íslensku óperunnar.

Hildigunnur kemur reglulega fram sem einsöngvari og hefur verið áberandi í kirkjutónlistarsenunni. Hún hefur m.a. sungið einsöngshlutverkin í Messías og Judas Maccabeus eftir Händel, Mattheusarpassíu, Jóhannesarpassíu og Jólaóratoríuna eftir Bach og Guðbrandsmessu eftir Hildigunni Rúnarsdóttur og einnig sungið hlutverk hjá Íslensku Óperunni. Hildigunnur hefur sungið einsöng m.a. með Sinfóníuhljómsveit Íslands, Barokksveitinni Brák, Caput og Kammersveit Reykjavíkur og frumflutt fjölda verka m.a. eftir Hreiðar Inga Þorsteinsson, Ingibjörgu Ýri Skarphéðinsdóttur, Kolbein Bjarnason og Huga Guðmundsson. Hildigunnur var tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna árið 2014 fyrir túlkun sína á sönglögum Karls O. Runólfssonar með kammerhópnum Kúbus.