Jan Söderblom
Hljómsveitarstjóri
Finnski hljómsveitarstjórinn Jan Söderblom er af tónlistarfólki kominn og hóf fiðlunám á unga aldri. Hann fór snemma að koma fram sem einleikari en lagði einnig áherslu á kammermúsík. Hann var til að mynda einn af stofnendum Nýja Helsinki-kvartettsins árið 1982 og lék með honum víða um heim í tvo áratugi. En hugur hans hneigðist líka að hljómsveitarstjórn og hann hóf því nám
hjá Jorma Panula og Leif Segerstam við Sibeliusarakademíuna. Frá því að náminu lauk hefur Söderblom starfað jöfnum höndum sem fiðluleikari og hljómsveitarstjóri. Hann var konsertmeistari Fílharmóníusveitarinnar í Helsinki í rúman áratug (2014–25) og stýrði þá stundum hljómsveitinni frá púltinu, meðal annars í sinfóníum Sibeliusar. Hann er listrænn stjórnandi Finnsku kammersveitarinnar og fer einnig fyrir Tammisaari sumartónleikunum og tónlistarhátíðinni í Kauniainen/Grankulla.
Söderblom hefur stjórnað öllum helstu hljómsveitum í Finnlandi og hann var aðalhljómsveitarstjóri Pori Sinfonietta á árunum 2012–16. Þá hefur hann stjórnað ýmsum sveitum utan heimalandsins, svo sem Skosku kammersveitinni, Norsku útvarpshljómsveitinni KORK, sinfóníuhljómsveitunum í Norrköping og Helsingjaborg, Dönsku kammersveitinni og MDR útvarpshljómsveitinni í Leipzig. Hann hefur einnig stýrt óperum bæði í Finnlandi og Svíþjóð og á þessu starfsári stjórnar hann ballettinum Öskubusku eftir Prokofíev hjá Finnska þjóðarballettinum. Söderblom kom áður fram með Sinfóníuhljómsveit Íslands sem gestakonsertmeistari í janúar 2023 og síðast á tónleikum 18. apríl 2024, þegar hann stjórnaði Sinfóníu nr. 41 eftir Wolfgang Amadeus Mozart úr sæti konsertmeistara.
