EN

Jukka-Pekka Saraste

Hljómsveitarstjóri

Jukka-Pekka Saraste er fæddur árið 1956 og verður því sjötugur á þessu ári. Hann hefur verið aðalstjórnandi Fílharmóníusveitarinnar í Helsinki og listrænn stjórnandi hennar frá árinu 2022. Hann er talinn meðal fremstu hljómsveitarstjóra Evrópu um þessar mundir og þótt víðar væri leitað. Saraste er þekktur fyrir mikla tilfinningalega dýpt í nálgun sinni og er því frábær túlkandi á verkum tónskálda eins og Beethovens, Bruckners, Shostakovitsj, Stravinskíj og Sibeliusar. Túlkun hans á hljómsveitarverkum síðrómantíkurinnar hefur hvarvetna vakið athygli, ekki síst á verkum Mahlers.

Saraste var upphaflega fiðluleikari en nam síðar hljómsveitarstjórn við Sibeliusarakademíuna hjá Jorma Panula á sama tíma og Esa-Pekka Salonen og Osmo Vänskä. Hann var einnig náinn samstarfmaður hins þekkta hljómsveitarstjóra Leif Segerstam. Saraste hefur unnið náið með Finnsku kammersveitinni og hefur stjórnað henni á tónleikaferðum, meðal annars um Bandaríkin og Kanada. Hann hefur auk þess stjórnað öðrum þekktum hljómsveitum eins og Sinfóníuhljómsveitinni í í Lahti, Skosku kammersveitinni, Sinfóníuhljómsveitinni í Toronto og fleiri hljómsveitum vestan hafs, Bresku útvarpshljómsveitinni, Sinfóníuhljómsveit WDR í Köln og Fílharmóníusveit Oslóborgar. Á seinni árum hefur hann stjórnað konsertuppfærslum á óperum frá fyrri hluta 20. aldar, t.d. Ödipus Rex eftir Stravinskíj, Erwartung eftir Schönberg og Kastala Bláskeggs eftir Bartók og fleiri óperum frá sama tímabili. Saraste hefur hljóðritað allar sinfóníur Beethovens, Sibeliusar og Carls Nielsen, nokkrar af sinfóníum Mahlers og Bruckners og auk þess ýmsar af þekktustu óperum 20. aldar.

Saraste hefur hlotið fjölda viðurkenninga; tónlistarverðlaun finnska ríkisins árið 2000, heiðursdoktorsnafnbót við York-háskóla í Toronto og er handhafi norskra og finnskra heiðursmerkja, þar með talin Sibeliusarorðan og æðsta heiðursmerki finnsku Ljónsorðunnar. Hann hefur í tvígang stjórnað Sinfóníuhljómsveit Íslands áður á áskriftartónleikum, síðast í mars árið 1986.