EN

Kammerkórinn Aurora

Kór

Kórinn Aurora var stofnaður árið 1997 af Margréti J. Pálmadóttur. Haustið 2015 tók Sigríður Soffía Hafliðadóttir við stjórn kórsins og raddleiðbeinandi er Matthildur Guðrún Hafliðadóttir. Kórinn er starfrækur innan Kirkju- og samsöngsdeildar Söngskólans Domus vox. Starf Auroru einkennist af metnaðarfullri raddþjálfun og fjölbreyttum verkefnum. Samhliða kórstarfi gefst kórfélögum kostur á einsöngsnámi upp að framhaldsstigi. Flestir kórnemendur hafa nýtt sér það tækifæri og er söngur því orðinn stór þáttur í lífi þeirra. Kórinn tekur að sér ýmis samstarfsverkefni og hefur margoft tekið þátt í tónleikum með Sinfóníuhljómsveit Íslands og leikhúsuppfærslum í samstarfi við Borgarleikhúsið, nú síðast í söngleiknum 9 líf (2020 – 2024). Vorið 2025 hlaut Aurora, ásamt Stúlknakór Reykjavíkur, tilnefningu á Sögur – verðlaunahátíð barnanna fyrir sýningu ársins (Tumi fer til tunglsins eftir Jóhann G. Jóhannsson) og leikara/barnahóp ársins (Kórinn í Tumi fer til tunglsins).