EN

Kór Langholtskirkju

Kór Langholtskirkju var stofnaður árið 1953 og hefur allar götur síðan getið sér gott orð fyrir flutning á stórum, klassískum verkum úr tónlistarsögunni, þar sem meistaraverk Bachs hafa verið í öndvegi. Á undanförnum árum hefur kórinn jafnframt einbeitt sér að söng án undirleiks og meðal annars flutt kórkonsert Schnittkes og Náttsöngva Rakhmanínovs, auk þess sem hann tók þátt í hinni virtu kórakeppni Florilège Vocal de Tours árið 2019. Kór Langholtskirkju hefur ætíð lagt mikið upp úr því að flytja ný, íslensk verk. Af þeim má nefna Guðbrandsmessu sem Hildigunnur Rúnarsdóttir samdi fyrir kórinn í tilefni 50 ára afmælis hans og kom út á hljómdiski árið 2008. Kórinn hefur á ferli sínum gefið út margar aðrar plötur, svo sem Jóhannesarpassíuna eftir Bach (1987), Barn er oss fætt (1991), An Anthology of Icelandic Choir Music (1993), Ísland er lýðveldi (1994), og Land míns föður (1997)