Lilja Hákonardóttir
Flautuleikari
Lilja Hákonardóttir er fædd árið 2003. Hún hóf þverflautunám 8 ára gömul við Tónmenntaskólann í Reykjavík og frá ellefu ára aldri lærði hún á flautu hjá móður sinni, Magneu Árnadóttur við Menntaskóla í tónlist. Nú stundar Lilja bakkalárnám við Royal College of Music í London, sem styrkhafi hins virta Elsie Gertrude Martin skólastyrks. Flautunámið stundar Lilja undir handleiðslu Gitte Marcusson og Emer McDonough, auk þess sem hún lærir á pikkólóflautu hjá Dimis Demetriades og á barrokkflautu hjá Rachel Brown. Hún hefur komið fram á hinum ýmsu tónlistarhátíðum og leikið í masterklössum hjá kennurum á borð við Emmanuel Pahud, Julien Beaudiment, Lornu McGhee ofl.
Lilja lék einleik með Sinfóníuhljómsveit Íslands árið 2018 og Sinfóníuhljómsveit Menntaskóla í tónlist árið 2022, ásamt því að hafa leitt flautudeild Ungsveitar Sinfóníuhljómsveitar Íslands á árunum 2019-2022. Nýlega vann Lilja sér inn tækifæri til að leika með Birmingham Royal Ballet Sinfonia að afloknu prufuspili.
