EN

Mariann Rähni

Píanóleikari

Mariann Rähni er fædd árið 2005 og hóf píanónám 3 ára gömul hjá móður sinni, Tuuli Rähni. Síðar hélt hún náminu áfram hjá henni í Tónlistarskóla Bolungarvíkur. Hún lauk framhaldsprófi í píanóleik árið 2024 og stundar nú nám við Listaháskóla Íslands undir leiðsögn Peters Máté og Eddu Erlendsdóttur. 
Mariann hefur hlotið viðurkenningar fyrir framúrskarandi píanóleik á Nótunni bæði 7 og 11 ára gömul og komið fram sem einleikari á lokatónleikum hátíðarinnar í Eldborg, Hörpu. Hún hefur komið fram sem einleikari á tónleikum og keppnum víða um Evrópu frá því hún var 10 ára gömul, þar á meðal á Írlandi, Eistlandi, Finnlandi, Lettlandi, Ítalíu, Spáni og Póllandi og hefur sótt fjölmarga masterklassa. Hún hefur tvisvar hlotið styrk úr minningarsjóði Gyðu Maríasdóttur til að stunda framhaldsnám á sviði lista.