Matthildur Traustadóttir
Fiðluleikari
Matthildur Traustadóttir hóf fiðlunám sjö ára. Hún fæddist á Ítalíu en ólst upp á Spáni þar sem hún hóf tónlistarnám. Árið 2020 flutti Matthildur til Íslands og byrjaði fiðlunám hjá Guðnýju Guðmundsdóttur. Matthildur lauk burtfaraprófi frá MÍT sem dúx. Hún hefur hlotið ýmis verðlaun fyrir fiðluleik sinn í Evrópu og Bandaríkjunum, t.a.m. Fenix International Music Competition, Artist Presentation Society, New Albany, Tuesday Musical, Enkor og Danenburg Honors, sem leiddi til heiðurstónleika í Listasafni Cleveland. Hún sigraði jafnframt einleikarakeppni MÍT haustið 2021.
Matthildur flutti sinn fyrsta einleik 14 ára með sinfóníuhljómsveit Conservatorio Profesional de Música de Tenerife. Hún hefur tekið þátt í tónlistarhátíðum á borð við Music Academy of the West, Heifetz Institute of Music og Meadowmount School of Music. Hún stundar nú nám við tónlistarháskólann Oberlin College and Conservatory undir leiðsögn Sigurbjörns Bernharðssonar.
