EN

Richard Schwennicke

Hljómsveitarstjóri

Richard Schwennicke þreytti frumraun sína sem stjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands á starfsárinu 2024–25. Hann var ráðinn sem tónlistarstjóri Íslensku óperunnar frá haustinu 2026 og heldur þannig áfram að styrkja samband sitt við íslenskt tónlistarlíf.

Ferill hans hófst við óperuhúsin í Kassel og Hannover og árið 2023 varð hann tónlistarstjóri og kapellmeistari við Staatstheater Darmstadt, þar sem hann hefur meðal annars stjórnað Pnima eftir Chaya Czernowin og Ævintýrum Hoffmanns eftir Offenbach. Árið 2024 gekk Schwennicke til liðs við tónlistardeild Rikisóperunnar í Vínarborg.

Hann nam píanóleik, hljómsveitarstjórn og kammertónlist í Hannover og starfar einnig sem tónskáld.