Rolf Verbeek
Hljómsveitarstjóri
Rolf Verbeek er fastráðinn gestastjórnandi Camerata RCO, sem skipuð er hljóðfæraleikurum úr Konunglegu Concertgebouw-hljómsveitinni, og einnig listrænn stjórnandi Somer kammersveitarinnar. Með Camerata RCO hefur hann gefið út hljóðritanir á sjöttu sinfóníu Bruckners í eigin útsetningu og Sehnsucht með Barböru Hannigan, þar sem flutt eru sönglög eftir Alban Berg og fjórða sinfónía Mahlers.
Í gegnum Equilibrium Young Artists-verkefni Barböru Hannigan starfaði Verbeek sem aðstoðarhljómsveitarstjóri hjá ýmsum hljómsveitum, þar á meðal Sinfóníuhljómsveit Lundúna, Fílharmóníuhljómsveitinni í München og Fílharmóníuhljómsveit franska ríkisútvarpsins.
