EN

Sigurgeir Agnarsson

Sellóleikari

Sigurgeir Agnarsson var skipaður í stöðu leiðara sellódeildar Sinfóníuhljómsveitar Íslands árið 2017 en þá hafði hann gegnt stöðu aðstoðarleiðara frá árinu 2003. Auk starfa sinna fyrir Sinfóníuhljómsveit Íslands hefur Sigurgeir verið virkur í íslensku tónlistarlífi sem flytjandi, kennari og skipuleggjandi ýmissa tónlistarviðburða.

Sigurgeir hefur komið fram sem einleikari með Sinfóníuhljómsveit Íslands í sellókonsertum Schumanns, Haydn (C- og D-dúr) og þríkonsertinum eftir Beethoven. Auk þess hefur hann leikið einleik með Kammersveit Reykjavíkur, Blásarasveit Reykja- víkur og Bochumer Symphoniker. Sigurgeir hefur komið fram á ýmsum tónlistarhátíðum bæði heima og erlendis, m.a. Listahátíð í Reykjavík, Reykjavik Midsummer Music og Oulunsalo-hátíðinni í Finnlandi. Sigurgeir var tilnefndur sem flytjandi ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum árið 2014 ásamt Önnu Guðnýju Guðmundsdóttur fyrir heildarflutning á verkum L.v. Beethoven fyrir selló og píanó á þrennum tónleikum á Listahátíð í Reykjavík sama ár.

Sigurgeir hefur kennt við Tónlistarskólann í Reykjavík (nú Menntaskóla í tónlist) frá árinu 2003. Hann er einn af stofnendum Alþjóðlegu tónlistarakademíunnar í Hörpu og situr í stjórn akademíunnar. Þá hefur hann jafnframt verið listrænn stjórnandi Reykholtshátíðar allt frá árinu 2013.

Sigurgeir hóf nám á selló hjá Gunnari Kvaran við Tónlistarskóla Garðabæjar árið 1984, þá átta ára gamall. Hann lauk einleikaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík árið 1995 og hélt til frekara náms við New England Conservatory of Music í Boston og síðar við Robert Schumann-tónlistarháskólann í Düsseldorf.

Sigurgeir hefur gegnt fjölda trúnaðarstarfa fyrir Sinfóníuhljómsveit Íslands sem og Starfsmannafélag Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Sigurgeir sat um margra ára skeið í stjórn Hjólreiðasambands Íslands og var árið 2018 gerður að heiðursfélaga sambandsins fyrir störf sín í þágu hjólreiðaíþróttarinnar.