Sir James MacMillan
Sir James MacMillan er eitt farsælasta tónskáld samtímans og kemur fram víða um heim sem hljómsveitarstjóri. Tónmál hans er gegnsýrt af áhrifum frá skoskum uppruna hans, kaþólskri trú og nánum tengslum við keltneska þjóðlagatónlist. MacMillan vakti fyrst alþjóðlega athygli eftir ótrúlega velgengni The Confession of Isobel Gowdie á BBC Proms árið 1990. Síðan þá hafa fjölmörg verka hans verið flutt og útvarpað um allan heim. Meðal helstu verka hans eru slagverkskonsertinn Veni, Veni, Emmanuel, sem hefur verið fluttur nær 500 sinnum, sellókonsert saminn fyrir Mstislav Rostropovich og fimm sinfóníur. Af nýlegri verkum má helst nefna Slagverkskonsert nr. 2 fyrir Colin Currie, Fiðlukonsert nr. 2 fyrir Nicola Benedetti og Sinfóníu nr. 5, samin fyrir kórinn, The Sixteen.
Nýlega hafa nokkur ný kór- og hljómsveitarverk hans verið frumflutt, þar á meðal Christmas Oratorio, sem Fílharmóníuhljómsveit Lundúna frumflutti árið 2021, og Timotheus, Bacchus and
Cecilia, hátíðarsöngur um mátt tónlistarinnar, sem Cincinnati Sinfóníuhljómsveitin frumflutti árið 2023.
MacMillan hefur átt glæstan feril sem stjórnandi eigin tónlistar jafnhliða flutningi á fjölbreyttri samtímatónlist og klassískum verkum. Hann hefur stjórnað virtum hljómsveitum víða um
heim. Hann var aðalgestastjórnandi Kammerfílharmóníu
hollenska útvarpsins til ársins 2013 og tónskáld/stjórnandi BBC Fílharmóníunnar til ársins 2009. Á starfsárinu 2025/26 gegnir MacMillan stöðu staðartónskálds hjá Fílharmóníunni í Dresden og mun þar m.a. stjórna hljómsveitinni í kór- og hljómsveitardagskrá sem inniheldur t.d. verk hans Cantos Sagrados frá 1989. Aðrir hápunktar starfsársins eru flutningur Christmas Oratorio með BBC Sinfóníuhljómsveitinni auk tónleika með Gulbenkian-hljómsveitinni, Sinfóníuhljómsveit Íslands, BBC Scottish Symphony, Flæmska útvarpskórsins og Royal College of Music Symphony Orchestra.
Ný óratoría, Angels Unawares, verður frumflutt af The Sixteen og Britten Sinfonia í Róm og Lundúnum.
Þetta er í annað sinn sem MacMillan stjórnar Sinfóníuhljómsveit Íslands en hann stjórnaði hljómsveitinni á tónleikum í Háskólabíói í febrúar 2001.
