EN

Unnsteinn Árnason

Bassi

Unnsteinn Árnason bassi hefur sungið fjölda hlutverka á sviði og komið fram við virt óperuhús og hátíðir víða um Evrópu, þar á meðal við óperuhúsið í Zürich og Bregenzer Festspiele.
Hann hefur jafnframt verið áberandi á íslenskum vettvangi sem einn af stofnendum Kammeróperunnar, þar sem hann hefur farið með hlutverk á borð við Fígaró í Brúðkaupi Fígarós, Escamillo í Carmen og Guglielmo í Così fan tutte. Hann hefur einnig komið fram hjá Íslensku Óperunni, m.a. sem Commissario í Madame Butterfly.

Á leikárinu 2021–2022 söng hann hlutverk Polyphem í nýrri óperu Die Odyssee við Opernhaus Zürich og kom fram á Bregenzer Festspiele þar sem hann söng hlutverk Commissario í Madame Butterfly og Walinoff/Governatore í Siberia.

Á árunum 2017–2021 var hann fastráðinn við Tiroler Landestheater í Innsbruck, þar sem hann söng á annan tug hlutverka, þar á meðal Eremit í Der Freischütz, Sparafucile og Monterone í Rigoletto, Sarastro í Töfraflautunni, Lothario í Mignon og Pietro í Simone Boccanegra.

Hann var valinn efnilegasti ungi söngvarinn við Austurrísku tónlistarverðlaunin 2019 fyrir túlkun sína á Mr. Kofner í Der Konsul og var árið 2016 valinn í Young Singers Project við Salzburger Festspiele.
Hann stundaði söngnám við tónlistarháskólann í Vínarborg á árunum 2013–2017 undir leiðsögn Karlheinz Hanser. Áður nam hann við Söngskólann í Reykjavík undir leiðsögn Alexanders Ashworth, Garðars Thórs Cortes og Viðars Gunnarssonar. Árið 2013 vann hann keppnina Ungir Einleikarar og kom í kjölfarið fram með Sinfóníuhljómsveit Íslands í Eldborg í Hörpu.