EN

Unnsteinn

Söngvari

Unnsteinn Manuel Stefánsson er tónlistarmaður, leikari, tónskáld og handritshöfundur. Hann er þekktastur sem meðlimur hljómsveitarinnar Retro Stefson frá 2006 en hefur einnig gefið út tónlist undir eigin nafni og hlotið þrívegis bæði Edduverðlaunin og Íslensku tónlistarverðlaunin. Hann hefur starfað víða í leikhúsi sem tónskáld, tónlistarstjóri, hljóðhönnuður og handritshöfundur, og hlaut Grímuverðlaunin fyrir bestu hljóðmynd fyrir Íslandsklukkuna.

Unnsteinn hefur margsinnis komið fram með Sinfóníuhljómsveit Íslands, bæði sem kynnir og söngvari.