EN

Verneri Pohjola

Einleikari

Finnski trompetleikarinn og tónskáldið Verneri Pohjola er einn dáðasti djassleikari Evrópu. Hann býr yfir einstakri tjáningu eins og birtist í hlýjum og kvikum leik hans og tónsköpun hans hefur hlotið margs konar viðurkenningar. Árið 2017 hlaut hann Yrjö-verðlaunin sem er æðsta viðurkenning sem djassleikurum er veitt í Finnlandi og fjórum árum síðar var hann tilnefndur til Tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs.

Pohjola fæddist inn í fjölskyldu tónlistarmanna; faðir hans var bassaleikarinn Pekka Pohjola en afinn Ensti var sellóleikari og kórstjóri og í ættinni er margt fleira tónlistarfólk. Verneri Pohjola vakti fyrst athygli með kvartett sínum Ilmiliekki Quartet sem skipaður var skólabræðrum úr Sibeliusarakademíunni. Fyrsta plata þeirra, March of the Alpha Males, kom út árið 2003 og árið eftir var Pohjola kjörinn tónlistarmaður ársins á djasshátíðinni í Pori. Pohjola hreppti Finnsku tónlistarverðlaunin (Emma) fyrir sólóplötu sína Aurora sem kom út árið 2009. Hann endurtók leikinn með plötunni Bullhorn (2015) sem þótti sýna fullþroska tónlistarmann með skýrt erindi og einstæðan, lýrískan tón.

Undanfarin ár hafa ekki síður verið Pohjola gjöful. Árið 2020 sendi hann frá sér plötuna The Dead Don't Dream sem hefur hlotið feikna góðar viðtökur og tveimur árum síðar stofnaði hann nýjan kvartett með píanóleikaranum Kit Downes, bassaleikaranum Jasper Høiby og Olavi Louhivuori trommuleikara. Fyrsta plata þeirra, Monkey Mind, kom út árið 2023, sama ár og Pohjola frumflutti Hush, trompetkonsert Kaiju Saariho, sem saminn var í samstarfi við hann.