EN

Opin kynning - barbara hannigan

Dagsetning Staðsetning Verð
1. sep. 2026 » 18:00 - 19:00 » Þriðjudagur Norðurljós | Harpa 0 kr.
Aðgangur ókeypis
  • Efnisskrá

    Barbara Hannigan, nýr aðalhljómsveitarstjóri og listrænn stjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands segir frá listrænum áherslum og hápunktum í dagskrá hljómsveitarinnar á nýju starfsári.

  • Fram koma:

    Barbara Hannigan
    Guðni Tómasson
    Katie Buckley og Liam Kaplan

Barbara Hannigan tekur nú við sem aðalhljómsveitarstjóri og listrænn stjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands og af því tilefni efnum við til opinnar kynningar þar sem áhugasömum gefst tækifæri á að kynnast nýjum aðalhljómsveitarstjóra. Barbara segir frá listrænum áherslum og hápunktum í dagskrá hljómsveitarinnar á nýju starfsári og sest svo niður með Guðna Tómassyni, framkvæmdastjóra SÍ, sem mun forvitnast um manneskjuna á bak við listina, feril hennar og samstarfið framundan. Ekki missa af þessu einstaka tækifæri til að fræðast um bæði Barböru og nýtt starfsár SÍ.

Katie Buckley og Liam Kaplan leika ljúfa tóna fyrir gesti á hörpu og píanó. Kynningin er haldin í Norðurljósum og þar er hægt að kaupa veitingar, drykki og smurbrauð.

Aðgangur er ókeypis og öll velkomin.

 

*Viðburðurinn er um klukkustundarlangur. Salurinn opnar 17:30 og frá þeim tíma er hægt að kaupa veitingar.