EN

Páskatónleikar Sinfóníunnar

Áskrift að tónleikaröð eða Regnbogakorti tryggir þér öruggt sæti á besta verðinu með 20% afslætti
Dagsetning Staðsetning Verð
7. apr. 2022 » 19:30 » Fimmtudagur Eldborg | Harpa 2.900 – 8.500 kr.

Ýmis tónskáld hafa í aldanna rás samið tónverk innblásin af sjö orðum Krists á krossinum, meðal annars Sofia Gubaidulina. Hún samdi konsertinn Sieben Worte eða Sjö orð, fyrir bajan, selló og strengjasveit, árið 1982, en við frumflutninginn í Moskvu lét hún ekkert uppi um trúarlega skírskotun verksins enda höfðu yfirvöld í Sovétríkjunum óbeit á kristinni trú. Sjö orð er meðal allra áhrifamestu verka Gubaidulinu og hljómar hér í snilldarflutningi harmóníkuleikarans Geirs Draugsvoll, sem hefur starfað náið með tónskáldinu um árabil, og Sigurgeirs Agnarssonar, fyrsta sellóleikara Sinfóníuhljómsveitar Íslands.

Anton Bruckner var eitt trúræknasta tónskáld 19. aldarinnar og sinfóníum hans hefur oft verið líkt við dómkirkjur í tónum. Þriðja sinfónían var tímamótaverk á ferli Bruckners og í verkinu fann hann sína eigin mikilfenglegu rödd eftir áralanga leit. Það var tónskáldinu gleðiefni að sjálfur Richard Wagner, sem hann dáði öðrum mönnum fremur, skyldi þiggja tileinkun verksins. Ekki fór þó allt jafn vel í framhaldinu, því að frumflutningur verksins í Vínarborg misheppnaðist algjörlega og sinfónían hlaut ekki fyrr en áratugum síðar þann sess sem henni ber.

Franski stjórnandinn Nathanaël Iselin vann nýlega til fyrstu verðlauna í Jorma Panula hljómsveitarstjórakeppninni í Finnlandi og starfar nú sem aðstoðarhljómsveitarstjóri hjá Sinfóníuhljómsveitinni í Árósum.

Hljómsveitarstjóri á tónleikunum er Nathanaël Iselin, sem hleypur í skarðið fyrir Evu Ollikainen vegna forfalla.

Sækja tónleikaskrá