EN

Skilaboðaskjóðan

Fjölskyldutónleikar Litla tónsprotans

Áskrift að tónleikaröð eða Regnbogakorti tryggir þér öruggt sæti á besta verðinu með 20% afslætti
Dagsetning Staðsetning Verð
30. apr. 2022 » 14:00 » Laugardagur Eldborg | Harpa 2.700 – 3.200 kr.
30. apr. 2022 » 16:00 » Laugardagur Eldborg | Harpa 2.700 – 3.200 kr.
  • Efnisskrá

    Þorvaldur Þorsteinsson og Jóhann G. Jóhannsson Skilaboðaskjóðan

  • Hljómsveitarstjóri

    Kornilios Michailidis

  • Einsöngvarar

    Sigríður Thorlacius
    Jóhanna Vigdís Arnardóttir
    Eyþór Ingi Gunnlaugsson
    Þór Breiðfjörð

  • Kór

    Gradualekór Langholtskirkju

Skilaboðaskjóðan eftir Þorvald Þorsteinsson með tónlist eftir Jóhann G. Jóhannsson var frumsýnd í Þjóðleikhúsinu árið 1993 og fékk fádæma góðar viðtökur. Tónlistin, sem hefur lifað góðu lífi utan leikhússins, hljómaði svo á Tónsprotatónleikum haustið 2013 í bráðskemmtilegri útsetningu tónskáldsins fyrir sinfóníuhljómsveit. Nú verða þessir vinsælu tónleikar endurteknir vegna fjölda áskorana.

Við bregðum okkur inn í Ævintýraskóginn í fylgd frábærra leikara og söngvara sem leysa frá skjóðunni og gæða persónur skógarins lífi. Maddamamma saumakona, Rauðhetta og úlfurinn, Mjallhvít og stjúpan, Hans og Gréta og nornin að ógleymdum Dreitli og hinum dvergunum munu gleðja unga jafnt sem aldna og varpa sannkölluðum ævintýraljóma inn í Eldborg.

Sinfóníuhljómsveit Íslands slæst í för með ævintýrapersónunum svo takast megi að bjarga Putta litla. Höfundur tónlistarinnar, Jóhann G. Jóhannsson starfaði um árabil sem tónlistarstjóri Þjóðleikhússins.

Sækja tónleikaskrá