EN

Bára Gísladóttir: Dægrin

Tónskáldið og kontrabassaleikarinn Bára Gísladóttir (1989) nam tónsmíðar hjá Hróðmari I. Sigurbjörnssyni og Þuríði Jónsdóttur við Listaháskóla Íslands, í Giuseppe Verdi-tónlistarháskólanum í Mílanó hjá Gabriele Manca og Konunglega tónlistarháskólanum í Kaupmannahöfn hjá Niels Rosing-Schow og Jeppe Just Christensen. Bára hefur unnið til fjölda verðlauna fyrir verk sín, þar á meðal Carl Nielsen and Anne Marie Carl-Nielsen Foundation’s Honarary Awards árið 2025 og Ernst von Siemens Composer verðlaunin 2024. Auk þeirra hefur hún hlotið Carl Nielsen and Anne Marie Carl-Nielsen Foundation’s Talent Awards, Gladsaxe Music Prize, Premio Abbiati del Disco, Léonie Sonning Talent Prize, Íslensku tónlistarverðlaunin og Tónlistarverðlaun Reykjavík Grapevine. Þá var verk hennar VÍDDIR tilnefnt til tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs. Verk Báru hafa verið flutt víðsvegar um heim af virtum sinfóníuhljómsveitum og á öllum helstu samtímatónlistarhátíðum. 

Tónskáldið segir eftirfarandi um verk sitt: „Dægrin er hljóðheimur drauma og flöktandi hugsana innan ákveðins tímaramma þar sem sumir hlutar hafa verið teygðir, aðrir þjappaðir saman og almennt mótaðir til að falla að formi verksins sjálfs. Verkið hvílir á hinu óhlutlæga þegar við förum í gegnum kafla sem lýsa andköfum í þunnu lofti, iðandi áferð, hægri hreyfingu, djúpinu innra með okkur, skorti/ofgnótt sorgar, ofureinbeittum rússíbanareiðum sem eru algjör ringulreið takmarkalauss eirðarleysis, kyrrð, skyndilegri vin í (mögulega) eyðimörk, flóttaleið sem býðst yfir litla brú og svo aftur að kjarna málsins: Dægrin löng og ströng.“

Verkið var pantað af Sinfóníuhljómsveitinni í Óðinsvéum, Sinfóníuhljómsveit Íslands, Dönsku þjóðarhljómsveitinni og Norsku norðurheimskautsfílharmóníunni (Norwegian Arctic Philharmonic Orchestra.

https://www.baragisladottir.com/