María Huld Sigfúsdóttir Markan: Benthos
María Huld Markan Sigfúsdóttir (1980) er fiðluleikari og tónskáld sem starfað hefur á hinum ýmsu sviðum lista frá unga aldri. Hún stundaði fiðlunám í Tónmenntaskóla Reykjavíkur og Tónlistarskólanum í Reykjavík, þaðan sem hún útskrifaðist með einleikarapróf á fiðlu árið 2000. Haustið 2003 hóf hún tónsmíðanám við Listaháskóla Íslands og útskrifaðist vorið 2007 með BA gráðu af tónsmíða- og nýmiðlabraut. María hefur verið meðlimur í hljómsveitinni amiinu til fjölda ára, auk þess að vinna náið með hljómsveitinni Sigur Rós auk þess að hafa tekið þátt í samsköpun listaverka þvert á miðla með ólíkum hópum listamanna. María Huld hefur á síðustu árum samið fjölda verka fyrir hljómsveitir, kammerhópa, kóra og einleikara, auk tónlistar við kvikmyndir og sviðsverk. Verk hennar hafa verið flutt víða um heim og tekin upp til útgáfu.
Tónskáldið segir eftirfarandi um verkið: „Benthos er forngrískt orð sem útleggst á íslensku sem djúp sjávar. Í vatnalíffræði er orðið notað yfir lífríki á botni sjávar, vatna og áa. Hafið hefur verið mér afar hugleikið síðustu ár og ekki síst þær hættur sem að því stafa af mannanna völdum. Sjávardjúpin hafa öldum saman verið ókunnug manninum og stærstur hluti þeirra er enn okkur framandi. Þar ríkja önnur lögmál en á landi, þar sem sólarljós er ekkert, súrefni af skornum skammti og þrýstingur mikill. Þar er þrátt fyrir allt lífríki og dýr sem reiða sig m.a. á hljóð til að skynja umhverfi sitt og til samskipta. Þar sem meirihluti okkar bláa hnattar er þakinn hafinu er það lungu og hjarta okkar allra og aðkallandi að hlúa að og umgangast af virðingu. Í tónverkinu eru þessar hugleiðingar notaðar sem innblástur og inni í því eru falin lítil hljóðskilaboð sem glöggir geta spreytt sig á að nema.“ Verkið er hugsað sem mið-kaflinn í þrílógíu um hafið sem saman stendur af Aequora, Benthos og Oceans.
https://www.mariasigfusdottir.com/
