Snorri Sigfús Birgisson: Konsert fyrir hljómsveit nr. 2
Snorri Sigfús Birgisson (1954) stundaði píanónám fyrst hjá Gunnari Sigurgeirssyni en innritaðist síðan í Tónlistarskólann í Reykjavík. Þar lærði hann á píanó hjá Hermínu S. Kristjánsson, Jóni Nordal
og Árna Kristjánssyni en lagði einnig stund á tónsmíðar hjá Þorkeli Sigurbjörnssyni. Hann lauk einleikaraprófi 1974. Veturinn 1974- 1975 stundaði hann framhaldsnám í píanóleik hjá Barry Snyder við Eastman School of Music í Bandaríkjunum og veturinn 1975-76 var hann í tónsmíðanámi í Osló hjá Finn Mortensen. Hann stundaði enn fremur nám í raftónlist hjá Lasse Thoresen og var í „Sónalógíu“ hjá Thoresen og Olav Anton Thommessen. Árin 1976-1978 lærði hann tónsmíðar hjá Ton de Leeuw í Amsterdam. Snorri hefur starfað í Reykjavík sem tónskáld, píanóleikari og stjórnandi síðan hann kom heim frá námi (1980) og var tónlistarkennari í 40 ár. Hann hefur samið sönglög, einleiksverk, kammertónlist, verk fyrir kammersveitir, raftónlist, kórtónlist og sinfónísk verk. Hann er félagi í CAPUT hópnum.
Konsert nr. 2 fyrir hljómsveit var saminn á árunum 2020 til 2024 (með hléum) fyrir Sinfóníuhljómsveit Norðurlands að beiðni hljómsveitarinnar. Verkið er í þremur köflum. Rætur þess liggja víða en tónskáldið hafði meðal annars til hliðsjónar stemmu sem Þorbjörn Kristinsson (1918-2001) kvað en Þorbjörn var um árabil barnaskólakennari við Glerárskóla. Hljóðritunin er aðgengileg á netinu (ismus.is). Stemmuna sem Snorri Sigfús hafði í huga við samningu verksins kvað Þorbjörn við eftirfarandi vísu eftir bróður sinn, Hjörleif Kristinsson (1918-1992):
Dags er glæta þrotin þá
þokan vætir kinnar.
Skjóna fætur skripla á
skuggum næturinnar.
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands frumflutti verkið undir stjórn Daníels Bjarnasonar í Hofi á Akureyri, 24. nóvember 2024. Verkið hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin árið 2025 í flokknum Sígild og samtímatónlist.
