EN

Undur jarðar með Stjörnu-Sævari

Opið hús á Menningarnótt

Tryggðu þér besta verðið með 20% afslætti með því að kaupa miða á ferna tónleika eða fleiri – Regnbogakort
Dagsetning Staðsetning Verð
20. ágú. 2022 » 15:00 » Laugardagur Eldborg | Harpa
  • Miðar:

    Aðgangur á tónleikana er ókeypis, hægt er að sækja miða á sinfonia.is eða í miðasölu Hörpu á tónleikadegi frá kl. 11:00. Öll eru velkomin á meðan húsrúm leyfir.

  • Hljómsveitarstjóri

    Kornilios Michailidis

  • Kynnir

    Sævar Helgi Bragason

Á Menningarnótt verður haldið í magnað ferðalag í tali og tónum þar sem undur veraldar eru meginstefið. Gestir fá að kynnast töfrum jarðar og alheimsins undir leiðsögn Stjörnu-Sævars og hlýða á stórbrotin og litrík tónverk sem skírskota til fyrirbæra úr náttúrunni. Haldið verður aftur í tímann þegar jörðin varð til og litið á eld og ís, höf og eyðimerkur, veðrið, lífið sjálft og hvernig við tengjumst þessu öllu. Meðal annars hljóma verk eftir Richard Strauss, John Williams og Wolfgang Amadeus Mozart. Sævar Helgi er landsþekktur fyrir þekkingu sína og ástríðu fyrir himingeimnum. 

Aðgangur á tónleikana er ókeypis, hægt er að sækja miða á sinfonia.is eða í miðasölu Hörpu á tónleikadegi frá kl. 11:00. Öll eru velkomin á meðan húsrúm leyfir. 
Vinsamlega athugið að hver og einn getur að hámarki bókað 4 miða.