EN

Ungir einleikarar

Tryggðu þér besta verðið með 20% afslætti með því að kaupa miða á ferna tónleika eða fleiri – Regnbogakort
Dagsetning Staðsetning Verð
12. jan. 2017 » 19:30 » Fimmtudagur Eldborg | Harpa 2.500 - 4.100 kr.
  • Efnisskrá

    Carl Nielsen Klarínettukonsert
    Felix Mendelssohn Fiðlukonsert í e-moll
    Pjotr Tsjajkovskíj Tilbrigði við Rokokóstef
    W. A. Mozart Quando avran fine omai og Padre germani
    Vincenzo Bellini Eccomi in lieta vesta... Oh! quante volte...
    Franz Lehár Meine Lippen sie küssen so heis

  • Hljómsveitarstjóri

    Petri Sakari

  • Einleikarar

    Auður Edda Erlendsdóttir
    Herdís Mjöll Guðmundsdóttir
    Hrafnhildur Marta Guðmundsdóttir
    Jóna G. Kolbrúnardóttir

Á hverju ári fer fram keppni ungra einleikara sem Sinfóníuhljómsveit Íslands stendur fyrir í samvinnu við Listaháskóla Íslands. Keppnin er opin nemendum á háskólastigi, óháð því hvaða skóla þeir sækja, og fá þeir hlutskörpustu að leika einleik með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Stjórnandi tónleikanna er Petri Sakari, fyrrum aðalhljómsveitarstjóri Sinfóníuhljómsveitarinnar. Petri kemur reglulega fram með hljómsveitinni og hefur einnig stjórnað tónleikum Ungsveitar Sinfóníuhljómsveitar Íslands.

Einleikarakeppnin fór fram 12. nóvember. Alls tóku 12 ungir einleikarar þátt  og stunda þeir allir söng- eða hljóðfæranám á bakkalárstigi.

Fjórir urðu hlutskarpastir í keppninni að þessu sinni og koma fram með Sinfóníuhljómsveitar Íslands á tónleikunum. Það voru þær Auður Edda Erlendsdóttir, klarínettuleikari, Herdís Mjöll Guðmundsdóttir, fiðluleikari, Hrafnhildur Marta Guðmundsdóttir, sellóleikari og Jóna G. Kolbrúnardóttir, sópran.

Það verður spennandi að sjá þessa ungu og upprennandi tónlistarmenn stíga á svið með hljómsveitnni í Eldborg í Hörpu.

Námsmenn geta keypt miða á 1.700 kr. gegn framvísun Skólakorts Sinfóníunnar í miðasölu Hörpu.

Nánar um skólakort Sinfóníunnar
 

Sækja tónleikaskrá