EN

Ungir einleikarar

Tryggðu þér besta verðið með 20% afslætti með því að kaupa miða á ferna tónleika eða fleiri – Regnbogakort
Dagsetning Staðsetning Verð
16. jan. 2020 » 19:30 » Fimmtudagur Eldborg | Harpa 2.600 - 4.600 kr.

Framtíð tónlistar á Íslandi er fólgin í því unga tónlistarfólki sem hér stundar nám eða er í þann mund að stíga sín fyrstu skref í atvinnumennsku. Ár hvert fer fram keppni ungra einleikara þar sem framúrskarandi nemendur fá að leika konsert eða syngja einsöng með Sinfóníuhljómsveit Íslands, sem er dýrmæt reynsla hverjum klassískum tónlistarmanni.

Sinfóníuhljómsveit Íslands stendur fyrir keppninni Ungir einleikarar í samvinnu við Listaháskóla Íslands og er hún opin nemendum á háskólastigi, óháð því hvaða skóla þeir sækja. Óhætt er að segja að mikil eftirvænting ríki á hverju ári í aðdraganda þessara tónleika og stemningin á tónleikunum sjálfum er engu lík.

Stjórnandi tónleikanna er hin finnska Anna-Maria Helsing, sem hefur stjórnað Sinfóníuhljómsveit Íslands margsinnis áður við góðar undirtektir. Hún var aðalstjórnandi Sinfóníuhljómsveitarinnar í Oulu árin 2010–13, og varð þar með fyrsta konan til að gegna slíku starfi í Finnlandi.

Einleikarakeppni Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Listaháskóla Íslands fór fram í Kaldalóni Hörpu dagana 25. og 26. október 2019 og urðu fjórir hlutskarpastir í keppninni að þessu sinni. Það eru þau Sólveig Vaka Eyþórsdóttir, fiðluleikari, Flemming Viðar Valmundsson, harmóníkuleikari, Kristín Ýr Jónsdóttir, þverflautuleikari og Gunnar Kristinn Óskarsson, trompetleikari.

Námsmenn yngri en 25 ára og tónlistarnemar geta keypt miða á 1.800 kr. gegn framvísun Skólakorts Sinfóníunnar í miðasölu Hörpu.

NÁNAR UM SKÓLAKORTið

Sækja tónleikaskrá