EN

Víkingur og John Adams

Áskrift að tónleikaröð eða Regnbogakorti tryggir þér öruggt sæti á besta verðinu með 20% afslætti
Dagsetning Staðsetning Verð
5. maí 2022 » 19:30 » Fimmtudagur Eldborg | Harpa 2.900 – 8.500 kr.

John Adams er eitt virtasta tónskáld Bandaríkjanna og brautryðjandi í þeirri grein tónlistar sem kölluð er naumhyggja eða mínímalismi. Hann hefur samið viðamiklar óperur á borð við Nixon in China og Doctor Atomic, hann hefur hlotið fimm Grammy-verðlaun og sex háskólar hafa veitt honum heiðursdoktorsnafnbót. Nú kemur John Adams í fyrsta sinn til Íslands og stjórnar tónleikum með eigin tónlist, bæði eldri og nýrri verkum.

Short Ride in a Fast Machine er eitt hans frægasta verk, snaggaraleg tónsmíð innblásin af stuttri ökuferð með glannalegum ökuþór. Harmonielehre frá árinu 1985 er mikilfenglegt verk og stórt í sniðum, eins konar „trúarjátning á mátt tóntegundanna“ eins og Adams sagði sjálfur. Verkinu hefur löngu verið skipað í flokk sígildra nútímaverka og eru flestir á því að hér sé um að ræða lykilverk í sögu bandarísks mínímalisma. „Það næsta sem komist verður naumhyggju- sinfóníu,“ skrifaði gagnrýnandi Gramophone.

Adams samdi píanókonsertinn Must the Devil Have All the Good Tunes? árið 2018 og sótti heiti hans í fleyg orð sem oft eru eignuð siðbótarfrömuðinum Marteini Lúther: „Þarf skrattinn að eiga öll góðu lögin?“ Það var Yuja Wang sem frumflutti verkið í Los Angeles, en Víkingur Heiðar Ólafsson hefur leikið það undir stjórn tónskáldsins víða um heim. Nú er komið að því að hann kynni verkið fyrir íslenskum áheyrendum. Þessi skemmtilegi konsert er „sprengigos af orku og uppfinningasemi“ að sögn eins gagnrýnanda, ómótstæðileg blanda af virtúósatækni Liszts, djassi og „honky-tonk“ píanóspili.

Sækja tónleikaskrá