EN

Árstíðir í múmíndal - 1.- 3. bekkur

Grunnskólatónleikar fyrir 1.- 3. bekk í Norðurljósum

Bókunartímabilinu er lokið.

Dagsetningar í boði:

Miðvikudagur - 1. mars 2023 - kl. 09:30
Miðvikudagur - 1. mars 2023 - kl. 11:00
Fimmtudagur - 2. mars 2023 - kl. 09:30
Fimmtudagur - 2. mars 2023 - kl. 11:00

Lauri Porra og Sinfóníuhljómsveit Íslands
Kynnir staðfestur síðar

Um tónleikana:
Á þessum heillandi tónleikum sem nefnast Árstíðir í múmíndal fléttast texti og myndir Tove Janssons á hrífandi hátt við tónlist Lauri Porra. Porra hefur getið sér gott orð sem bassaleikari þungarokksveitarinnar Stratovarius og er barnabarn finnska tónskáldsins Sibeliusar. Bækur Tove Jansson um múmínálfana hafa áratugum saman notið mikilla vinsælda meðal barna og fullorðinna.

Tónleikarnir eru u.þ.b. 40 mínútna langir.